Gul skriðuviðvörun á norðanverðum Vestfjörðum

03.10.2026

Athugið

Gul skriðuviðvörun á norðanverðum Vestfjörðum

  • Gul viðvörun í gildi vegna skriðuhættu á norðanverðum Vestfjörðum
  • Skriður og grjóthrun hafa fallið síðustu daga á svæðinu
  • Áframhaldandi úrkoma fram yfir helgi

Síðustu dagar hafa verið mjög úrkomusamir víða um land. Á norðanverðum Vestfjörðum hafa fallið bæði grjóthrun og skriður, mest áberandi var stór skriða sem féll á Hnífsdalsveg í gær, 2. október. Í dag, laugardag, er von á lægð yfir landið sem með fylgir úrkoma. Heildarúrkoma sem fylgir lægðinni er ekki talin veruleg með tilliti til skriðuhættu, en þar sem jarðvegur er þegar orðinn vatnsmettaður getur lítil viðbótarúrkoma nægt til að koma af stað hreyfingum í hlíðum og aukið líkur á skriðuföllum.

Athyglisverð virkni hefur verið í Gleiðarhjalla síðustu daga en það svæði getur verið viðkvæmt í kjölfar langvarandi úrkomu. Skriða féll í Eyrarhlíð í gær, föstudaginn 2. október, sem var 20 metra breið á veginum. Vegna áframhaldandi úrkomu í dag eru líkur á frekari virkni í Gleiðarhjalla og Eyrarhlíð. Búast má við skyndilegum vegalokunum, sérstaklega á Hnífsdalsvegi, í þessum aðstæðum. Skriðuvakt Veðurstofunnar fylgist náið með aðstæðum, og hvetur fólk að fylgjast með tilkynningum frá lögreglu og á vef Vegagerðarinnar.

Myndin sýnir skriðu sem féll í Eyrarhlíð 2. október. Skriðan var 20 metra breið á vegi.

Skriða á Hnífsdalsveg neðan við Eyrarhlíð 2. október (mynd: Jóhannes Konráð Andrésson)

Almenningur er hvattur til að tilkynna skriðuvaktinni um skriður og grjóthrun. Hægt er að senda tilkynningu á netfangið skriduvakt@vedur.is eða nota rafrænt eyðublað fyrir tilkynningar um ofanflóð. Gott er að tilgreina nákvæma staðsetningu og hvenær skriðan eða grjóthrunið varð. Ef það er ekki vitað nægir að segja hvenær þess varð vart. Látið myndir fylgja ef kostur er. Skriðuvaktin fer yfir tilkynningarnar og reynir að staðfesta þær áður en þær eru færðar í ofanflóðagagnagrunn Veðurstofunnar.