BETA
28.09.2026
Víðáttumikil lægð fór norður yfir landið í liðinni viku og olli mikilli úrkomu á Suður-, Austur- og Norðvesturlandi. Af þeim sökum voru gefnar út gular skriðuviðvaranir á nokkrum skriðuviðvörunarsvæðum. Við útgáfu skriðuviðvarananna var nýtt viðvörunarkerfi fyrir skriðuföll notað í fyrsta sinn. Veðurstofan kynnti jafnframt nýjar vefsíður fyrir skriðuviðvaranir. Hvort tveggja er ætlað að auðvelda upplýsingagjöf til almennings og gera upplýsingar um skriðuhættu aðgengilegri.
Skriðuviðvaranir eru settar fram með svipuðum hætti og veðurviðvaranir, með gulum, appelsínugulum og rauðum viðvörunarstigum. Landinu er skipt í 15 skriðuviðvörunarsvæði og eru viðvaranir gefnar út fyrir þau svæði þar sem aðstæður benda til aukinnar hættu á skriðuföllum.
Fimmtudaginn 24. september voru gefnar út gular skriðuviðvaranir fyrir Suðurland, Suðausturland, sunnanverða Austfirði, miðhálendið, Vestfirði og Strandir. Talsverðri eða mikilli úrkomu var spáð á þessum svæðum og sums staðar var búist við mikilli úrkomu á stuttum tíma.
Bæði mikil úrkoma á skömmum tíma og langvarandi úrkoma geta valdið skriðuföllum. Ekki er þó alltaf auðvelt að segja til um hvort vegur þyngra hverju sinni. Áhrif úrkomunnar ráðast meðal annars af rakastigi jarðvegs áður en hún fellur, jarðfræðilegum aðstæðum og landslagi.
Á viðvörunartímabilinu bárust tilkynningar um skriður á miðhálendinu. Þann 24. september féll skriða við Landmannalaugar og lokaði leiðinni til og frá skálasvæðinu um tíma. Atvikið sýnir hversu varasamar aðstæður geta orðið.
Daginn eftir, föstudaginn 25. september, bárust tilkynningar um grjóthrun og skriður á Strandavegi og þurfti að loka veginum um tíma. Frá norðanverðum Vestfjörðum bárust einnig tilkynningar um grjóthrun á þekktum grjóthrunsstöðum, meðal annars við Spilli í Súgandafirði og í Ófæruhlíð í Önundarfirði. Á Ísafirði varð einnig vart við grjóthrun við Gleiðarhjalla.
Á norðanverðum Vestfjörðum mældist mikil úrkoma á meðan viðvörunin var í gildi. Þar var jafnframt norðanátt ríkjandi og hluti úrkomunnar féll sem snjór til fjalla. Sá hluti úrkomunnar skilaði sér því ekki strax sem vatn niður í jarðveginn, sem kann að hafa dregið úr skriðuhættu til fjalla á meðan úrkoman stóð yfir.
Skriðuvaktin fylgist áfram með aðstæðum og tilkynningum um skriður og grjóthrun. Skriður geta fallið eftir að mesta úrkoman er gengin yfir. Þá getur jafnframt liðið nokkur tími þar til skriðufalla á afskekktum og fáförnum svæðum verður vart. Þetta á einkum við á norðanverðum Vestfjörðum, þar sem svæðið er víðfeðmt og byggð víða strjál.
Á vef Veðurstofu Íslands er hægt að fylgjast með skráðum skriðuföllum. Þar eru birtar tilkynningar sem berast skriðuvaktinni og veita þær yfirlit yfir staðsetningu og dreifingu skriðufalla um landið.

Á vefsíðunni er hægt að skoða staðsetningu skráðra skriðna á korti og lista með upplýsingum um þær.
Almenningur er hvattur til að tilkynna skriðuvaktinni um skriður og grjóthrun. Hægt er að senda tilkynningu á netfangið skriduvakt@vedur.is eða nota rafrænt eyðublað fyrir tilkynningar um ofanflóð.
Gott er að tilgreina nákvæma staðsetningu og hvenær skriðan eða grjóthrunið varð. Ef það er ekki vitað nægir að segja hvenær þess varð vart. Látið myndir fylgja ef kostur er. Skriðuvaktin fer yfir tilkynningarnar og reynir að staðfesta þær áður en þær eru færðar í ofanflóðagagnagrunn Veðurstofunnar.