BETA
11.08.2026
Nýtt
Athugið
Spá gerð kl. 23 þriðjudaginn 11. ágúst
tæpum 19 klukkustundum fyrir almyrkvann
Á miðvikudag er gert ráð fyrir að lægð komi upp að sunnanverðu landinu. Nýjustu veðurlíkanakeyrslur reikna með að hún verði skammt suður af Reykjanesinu síðdegis á miðvikudag og fari veðraskil hennar yfir stærstan hluta landsins. Síðan er útlit fyrir að hún þokist austur með suðurströndinni í framhaldinu. Úrkoma verði einkum bundin við sunnanvert landið en úrkomuminna í Breiðafirði og á Vestfjörðum fram undir kvöld, en skilin virðast þá ætla að ganga yfir. Því verða líklega mestar líkur á að skýjahulan gæti brotnað upp á því svæði í kringum sólmyrkvann. Einnig verður lengst af þurrt norðanlands fram eftir degi. Hér neðst má hins vegar finna nákvæmari veðurspár fyrir hvert spásvæði á vesturhluta landsins, m.t.t. sólmyrkvans.
Nú eru flest líkön komin með lægðina á svipaðar slóðir og því talsverðar líkur á að við séum að nálgast rétta staðsetningu lægðarinnar. En þó er einhver óvissa um umfang skilanna, þ.e. hvenær, hve mikið og hve langt skilin ganga til norðurs upp eftir Faxaflóa. Það mun hafa mikið að segja hve vel eða hvort eitthvað muni sjást til sólmyrkvans, einkum norðvestanlands.
Í háupplausnarlíkönum Veðurstofunnar eru að finna þrenn skýjalög, há- mið- og lágský. Háský hafa lítil áhrif á sólmyrkvann þar sem sólarljós á frekar auðvelt með að brjótast í gegnum þau. Miðskýin hleypa minna í gegnum sig en alls ekki útilokað að hægt sé að njóta sólmyrkvans. Ef hins vegar liggur lágskýjasvæði yfir eru líkurnar hins vegar litlar á að eitthvað sjáist til sólar eða myrkvans.
Heildarskýjahulan gefur til kynna að nánast verði alskýjað yfir landinu kl. 18 (græn mynd) og tildæmis eru litlar líkur á að skýjahulan brotni upp á suðvesturhorninu. Hins vegar er að sjá að lágskýjamyndin er fremur brotin sums staðar vestan- og norðvestanlands, en þó einkum á Vestfjörðum. Mið- og háský sýna göt á svipuðum slóðum en ekki á alveg sömu stöðum. Efri myndin er frá nýjustu keyrslu IG-háupplausnarlíkansins, en neðri sýnir DINI-háupplausnarlíkanið, og þar sést að staðsetning gata í skýjahulu er enn á reiki þar sem líkönin eru ekki alveg sammála.

Skýjahula úr IG háupplausnarlíkaninu, nýjasta keyrsla frá kl. 18 þann 11. ágúst.

Skýjahula úr DINI háupplausnarlíkaninu, nýjasta keyrsla frá kl. 18 þann 11. ágúst.
Almennt eru skýjahuluspár þær afurðir sem hvað erfiðast er að reikna þar sem eðlisfræðin á bak við þær er mjög flókin. Því ber að taka svona smágötum með fyrirvara. Spárnar gefa frekar til kynna að göt gætu myndast í skýjahulu á svæðinu og ekki er hægt að staðsetja þau nákvæmlega.
Spáin fyrir allt landið á miðvikudag er svohljóðandi:
Austan og norðaustan 3-10 m/s, en heldur hvassara með suðurströndinni. Víða skýjað og skúrir eða rigning með köflum, en dregur úr úrkomu norðvestantil um kvöldið. Hiti 8 til 18 stig, svalast við norður- og austurströndina.
Úrkomuspákort hér fyrir neðan frá IG og DINI, háupplausnalíkönum Veðurstofunnar, sem gilda kl. 18 á miðvikudag sýna með mun meiri nákvæmni hvar rigning muni falla og umfang svæðisins, og aftur sést að erfitt er að meta nákvæma staðsetningu. Mestar líkur á að skýjahulan brotni upp eru þó enn í kringum Breiðafjörð og þá sérstaklega á Vestfjörðum.

Úrkoma og vindur í IG háupplausnarlíkaninu, nýjasta keyrsla frá kl. 18 þann 11. ágúst.

Úrkoma og vindur í DINI háupplausnarlíkaninu, nýjasta keyrsla frá kl 18 þann 11. ágúst.
Höfuðborgarsvæðið
Fremur hæg austlæg eða norðaustlæg átt, skýjað og skúrir, en samfelldari rigning um tíma undir kvöld og dregur síðan úr úrkomu. Ekki miklar líkur á að göt myndist í skýjahuluna í kringum sólmyrkvann.
Reykjanesskaginn
Svipað útlit og með höfuðborgarsvæðið, norðaustlæg átt og skúrir, samfelldari rigning um tíma undir kvöld og dregur svo úr úrkomu. Ekki miklar líkur á að göt myndist í skýjahuluna.
Snæfellsnes
Austanátt og yfirleitt þurrt fram yfir hádegi, en rigning með köflum eða skúrir eftir hádegi. Líklega skýjað, en þar sem skilin virðast vera að leysast upp í kringum sólmyrkvahámark eru líkur á að lág- og miðskýjahulan brotni upp á stöku stað í kringum Breiðafjörð fram undir kvöld.
Vestfirðir
Fremur hæg norðaustlæg átt og skýjað að mestu. Lengst af þurrt, en skúrir á stöku stað undir kvöld og bætir heldur í úrkomu seint um kvöldið. Útlit fyrir háský, Ekki mikið um lágský, helst vestantil, og líkur á götum í miðskýjum, einkum norðvestantil.