Talsverð skammvinn úrkoma á sunnan- og austanverðu landinu fram á morgun

11.10.2026

Athugið

Talsverð skammvinn úrkoma á sunnan- og austanverðu landinu fram á morgun

Seint í kvöld, 11. október, koma skil inn að landinu sunnanverðu. Á Suðaustur- og Austurlandi má búast við talsverðri skammvinnri úrkomu. Á hádegi á morgun eiga skilin að vera gengin yfir. Spáðar úrkomutölur fara ekki yfir þröskuldsgildi á þéttbýlisstöðum á svæðinu.

Ekki er hægt að útiloka hreyfingar í bröttum hlíðum, svo sem grjóthrun og minni skriður, á meðan skilin ganga yfir. Skriðuvakt Veðurstofunnar biðlar til fólks sem þarf að vera á ferðinni aðfaranótt mánudags að sýna varúð á vegum, sérstaklega undir bröttum hlíðum og á þekktum grjóthrunssvæðum, og fylgjast með tilkynningum á vef Vegagerðar.

Almenningur er hvattur til að tilkynna skriðuvaktinni um skriður og grjóthrun. Hægt er að senda tilkynningu á netfangið skriduvakt@vedur.is eða nota rafrænt eyðublað fyrir tilkynningar um ofanflóð. Gott er að tilgreina nákvæma staðsetningu og hvenær skriðan eða grjóthrunið varð. Ef það er ekki vitað nægir að segja hvenær þess varð vart. Látið myndir fylgja ef kostur er. Skriðuvaktin fer yfir tilkynningarnar og reynir að staðfesta þær áður en þær eru færðar í ofanflóðagagnagrunn Veðurstofunnar.