BETA
23.09.2026
Athugið
Veðurspá gerir ráð fyrir talsverðri úrkomu á Suðurlandi, Suðausturlandi, sunnanverðum Austfjörðum og á Vestfjörðum og Ströndum fimmtudaginn 24. september og fram á föstudaginn, 25. september.
Úrkoman hefst fyrst syðst á landinu á fyrstu klukkustundum fimmtudags, meðal annars við Mýrdalsjökul, og færist síðan norðar. Mesta uppsafnaða úrkomu er spáð yfir jöklasvæðunum, þar á meðal Eyjafjallajökli, Mýrdalsjökli og Vatnajökli. Mesta úrkoman er væntanleg í Öræfum. Vindátt verður suðaustlæg og austlæg.
Gert er ráð fyrir talsverðri rigningu fram eftir fimmtudegi og fram á aðfaranótt föstudags. Síðan styttir upp sunnanlands, en úrkomusvæði verður áfram yfir Ströndum, einkum á jökla- og fjallasvæðum, og í fjöllum á norðanverðum Vestfjörðum. Vindátt á Vestfjörðum snýst í norðan- og norðaustanátt. Þar kolnar og búist má við snjókomu á fjallvegum og til fjalla. Úrkoma heldur þar áfram til laugardags.
Uppsöfnuð úrkoma verður talsverð á fyrrnefndum svæðum. Einnig er spáð talsverðri úrkomuákefð á stuttum tíma, samkvæmt útreikningum veðurlíkana.
Í kjölfar þessarar úrkomu má búast við vatnavöxtum í ám og lækjum og að farvegir, sem alla jafna eru vatnslausir, fyllist af vatni. Yfirborðshreyfingar, svo sem grjóthrun, farvegabundnar aurskriður og jarðvegsskriður, geta átt sér stað skyndilega og án mikils fyrirvara. Því er fólki ráðlagt að staldra ekki við undir bröttum hlíðum og sýna sérstaka aðgát á vegum landsins. Ekki er talin hætta á ofanflóðum í byggð. Mælt er með að fylgjast með upplýsingum á vef Vegagerðarinnar og kynna sér veðurspá og viðvaranir.
Veðurstofan þiggur gjarnan tilkynningar um ofanflóð. Hægt er að hafa samband í síma 522-6000 á opnunartíma skiptiborðsins (https://www.vedur.is/um-vi/hafa-samband/) eða senda tölvupóst með upplýsingum á netfangið skriduvakt@vedur.is. Gott er að láta fylgja mynd af flóðinu (skriðunni, grjóthruninu) og nákvæma staðsetningu auk tímasetningar, hvenær ofanflóðið féll eða hvenær fólk varð vart við það. Einnig er hægt að tilkynna ofanflóð með þessu formi hér.

Uppsöfnuð úrkoma næstu 72 klukkustundir, samkvæmt IG-veðurlíkani.