BETA

Tímabundinn flutningur á bylgjuvíxlmælitæki frá Seyðisfirði til Eskifjarðar í ágúst

21.08.2026

Nýtt

Tímabundinn flutningur á bylgjuvíxlmælitæki frá Seyðisfirði til Eskifjarðar í ágúst

Í gærmorgun, fimmtudaginn 20. ágúst, var bylgjuvíxlmælitækið (e. GB-InSAR) sem staðsett er í Vestdal flutt til Eskifjarðar. Mælitækið mælir breytingar á yfirborði í Strandartind og ytri hluta Neðri-Botna. Flutningur á mælitækinu til Eskifjarðar er tímabundinn. Flutningur á mælitækinu til Eskifjarðar er tímabundinn. Bylgjuvíxlmælitækið mun vera á Eskifirði í eina viku og mæla breytingar á yfirborði hlíðanna sem eru ofan við byggðina. Þetta er gert að jafnaði tvisvar á ári, til að nýta mælitækið sem best á svæðinu.

Skriðuvakt gefur út uppfærslu þegar búið er að flytja mælitækið aftur til Seyðisfjarðar að viku liðinni.