BETA

Úrkomusamt á Norðvestur- og Norðausturlandi helgina 7. til 9. ágúst - líkur á skriðuföllum

07.08.2026

Nýtt

Úrkomusamt á Norðvestur- og Norðausturlandi helgina 7. til 9. ágúst - líkur á skriðuföllum

Rignt hefur meira en veðurspár hafa gert ráð fyrir. Á Ströndum hafa mælst 82 mm úrkomu síðasta sólarhring. Spár gera ráð fyrir áframhaldandi rigningu um helgina, sér í lagi á norðvestan- og norðaustanverðu landinu.

Undanfarnir dagar hafa verið úrkomusamir og því rignir víða í mettaðan jarðveg. Ekki er hægt að útiloka hreyfingar í bröttum hlíðum, grjóthrun og minni skriður, bæði innan og utan farvega.

Fólki er ráðlagt að sýna aðgát á ferðum sínum, dvelja ekki lengi undir giljum og bröttum hlíðum og vera ávallt vel vakandi fyrir aðstæðum í umhverfinu. Skriðuvakt Veðurstofunnar fylgist vel með aðstæðum um helgina.

Veðurstofan þiggur gjarnan tilkynningar um ofanflóð. Hægt er að hafa samband í síma 522-6000 á opnunartíma skiptiborðsins (https://www.vedur.is/um-vi/hafa-samband/) eða senda tölvupóst með upplýsingum á netfangið skriduvakt@vedur.is. Gott er að láta fylgja mynd af flóðinu (skriðunni, grjóthruninu) og nákvæma staðsetningu auk tímasetningar, hvenær ofanflóðið féll eða hvenær fólk varð vart við það. Einnig er hægt að tilkynna ofanflóð með þessu formi hér.