BETA
08.08.2026
Nýtt
Athugið
Á miðvikudag er útlit fyrir að lægð verði staðsett skammt suður af landinu og er útlit fyrir að lægðin fari yfir landið austanvert á leið sinni yfir landið. Veðraskil frá henni fara jafnframt með lægðinni yfir landið, frá suðri til norðurs. Þessum skilum fylgir úrkoma og milt veður.
Þær breytingar hafa orðið að minni úrkoma er nú að reiknast á vestan og norðanvert landið en samt sem áður gera spár ráð fyrir að skýjað verði víðast hvar en fari að brotna upp vestast um kvöldið. Líta má á að þetta sé jákvæð þróun frá því sem verið hefur en enn er allnokkur tími í sólmyrkvan og enn gæti þetta batnað áfram eða farið aftur í meiri úrkomu og alskýjað.
Austan og norðaustan 3-10 m/s og allvíða skýjað og rigning með köflum, en lengst af þurrt á Norður- og Austurlandi þegar líður á daginn. Hiti 8 til 18 stig, svalast við norður- og austurströndina.
Enn er allnokkur óvissa um tímasetningu á veðraskilum og úrkomu yfir landið, þótt eftir því sem nær dregur minnki óvissan. Eins og staðan er núna er verður skýjað mjög víða og úrkoma allvíða, en líkur á skýjahulan brotni eitthvað upp þegar líður á daginn þegar skilin verða farin hjá. Þegar nokkur spálíkön eru skoðuð smá sjá að breytileikinn á milli þeirra er lítill og það gefur til kynna að við séum að nálgast líklegt veður á miðvikudag. Veðurlíkön sem reiknuð eru í háupplausn fyrir Ísland ná fyrst að spá fyrir veður á miðvikudagskvöld, í útreikningum sínum á sunnudagskvöldið. Þau veðurlíkön sem skoðuð eru núna eru í grófara reiknineti. Því má gera ráð fyrir spáin fari að skýrast betur með hin ýmsu skýjalög ásamt úrkomutegund og magni annað kvöld.
Þessi spá er uppfærð tvisvar sinnum á dag og oftar þegar nær dregur viðburðinum.

Spákort fyrir Ísland sem sýnir lægð sunnan við landið 12. ágúst, kl. 18.00. Breytingar á næstu líkana keyrslum eru mjög líklegar og því bert að taka kortum, þetta langt fram í tímann með fyrirvara.
Hæg breytileg átt, skýjað og dálítil væta. Auknar líkur að göt myndist í skýjahuluna, einkum um kvöldið.
Hæg norðlæg átt, skýjað og líkur á smá vætu af og til. Líklega alskýjað, en líkur á að skýjahulan gæti brotnað eð einhverju leiti upp.
Hæg breytileg átt og lengst af þurrt. Einhver göt gætu verið í skýjahulunni og aukist um kvöldið.
Fremur hæg norðaustlæg átt og þurrt. Á sunnanverðum Vestfjörðum verður líklega mun bjartara yfir en norðantil og allgóðar líkur á að göt gætu myndast í skýjahuluna, einkum um kvöldið .