BETA

Veðurhorfur vegna sólmyrkvans: Minni úrkoma í nýjustu spám

09.08.2026

Veðurhorfur vegna sólmyrkvans: Minni úrkoma í nýjustu spám

Spá gerð sunnudaginn 9. ágúst kl. 11.

Spáin nær 90 klukkustundir fram í tímann.

Á miðvikudag er gert ráð fyrir að lægð komi upp að sunnanverðu landinu. Nýjustu veðurlíkanakeyrslur reikna að hún komi fyrst nærri suðvesturhorni landsins um morguninn og verði þar fram eftir degi en síðan er útlit fyrir að hún þokist austur með suðurströndinni um kvöldið. Veðraskil og úrkoma frá lægðinni verða viðloðandi sunnanvert landið, en einnig fer dálítið úrkomusvæði yfir landið frá suðri til norðurs um morguninn og fram eftir degi. Síðdegis er núna gert ráð fyrir að það verði skýjað með köflum og úrkomulítið á Vesturlandi og mögulega getur skýjahulan brotnað þar upp staðbundið.

Helstu breytingar frá síðustu spá er að minni úrkoma er nú að reiknast á vestan og norðanvert landið en samt sem áður gera spár ráð fyrir að skýjað verði víðast hvar en fari að brotna upp vestast um kvöldið. Líta má á að þetta sé jákvæð þróun frá því sem verið hefur en enn er allnokkur tími í sólmyrkvann og enn gæti þetta batnað áfram eða farið aftur í meiri úrkomu og alskýjað. 

Spáin fyrir allt landið á miðvikudag er svohljóðandi:

Austan og norðaustan 3-10 m/s og allvíða skýjað og rigning með köflum, en þurrt fram eftir degi á Norðurlandi. Skýjað með köflum og úrkomulítið vestantil síðdegis. Hiti 8 til 18 stig, svalast við norður- og austurströndina.

Enn er óvissa um nákvæma tímasetningu á veðraskilum, úrkomu  og skýjafari, þótt óvissan minnki eitthvað eftir því sem nær dregur. En spálíkön eru þó farin að vera nokkuð sammála með stóru myndina.  Í kvöld ná háupplausnar reiknilíkön fyrir Ísland að spá fyrir veður á miðvikudagskvöld, en áfram verður þó einnig skoðað hvað líkön í grófara reiknineti eru að segja okkur.

Þessi spá er uppfærð tvisvar sinnum á dag og oftar þegar nær dregur viðburðinum.

alt=""

Kort sem sýnir staðsetningu lægðar suður af Reykjanesi kl. 18 miðvikudaginn 12. ágúst. Úrkoma er táknuð með grænum og gulum litum og má sjá að það verður úrkoma um mest allt sunnan- og austanvert landið, en úrkomulítið á Vesturlandi. Gert er ráð fyrir að þessi lægð þokist austur með suðurströnd landsins þegar líður á kvöldið.

Breytingar á næstu spám eru líklegar og því ber að taka spákortum þetta langt fram í tímann með fyrirvara.

Veðurhorfur á almyrkvaslóðum

Höfuðborgarsvæðið

Hæg norðlæg eða breytileg átt, skýjað og dálítil væta fram eftir degi. En auknar líkur eru á að göt myndist í skýjahuluna, einkum um kvöldið.

Reykjanesskaginn

Hæg norðlæg átt, skýjað og líkur á smá vætu af og til fram eftir degi. Líklega alskýjað síðdegis, en þó eru dálitlar líkur á að skýjahulan gæti brotnað að einhverju leiti upp, einkum um kvöldið.

Snæfellsnes

Hæg norðaustlæg átt og breytileg átt og lengst af þurrt eftir hádegi. Líklega skýjað með köflum síðdegis, en núna er útlit fyrir að það verð mest af mið- og háskýjum og lítið um lágský. Útlit fyrir að göt í skýjahulunni gætu aukist um kvöldið.

Vestfirðir

Fremur hæg norðaustlæg átt og þurrt að mestu eftir hádegi. Á sunnanverðum Vestfjörðum verður líklega mun bjartara yfir en norðantil og allgóðar líkur á að göt gætu myndast í skýjahuluna síðdegis. Núna er útlit fyrir að þau ský sem verði á himni, verð mest af mið- og háskýjategundum og lítið um lágský.

Nánar má fræðast um skýjategundir, myndir og hæð þeirra á https://www.vedur.is/vedur/frodleikur/greinar/nr/351