BETA

Veðurhorfur vegna sólmyrkvans: Uppfærsla 8. ágúst kl. 11

08.08.2026

Nýtt

Veðurhorfur vegna sólmyrkvans: Uppfærsla 8. ágúst kl. 11

Spá fyrir landið í heild

Austan og norðaustan 3-10 m/s og allvíða skýjað og rigning, en skýjað með köflum og úrkomuminna á Norður- og Austurlandi þegar líður á daginn. Hiti 8 til 18 stig, svalast við norðurströndina.

Enn er allnokkur óvissa um tímasetningu á veðraskilum og úrkomu yfir landið, þótt eftir því sem nær dregur minnki óvissan. Eins og staðan er núna er verður skýjað mjög víða og úrkoma allvíða, en líkur á skýjahulan brotni eitthvað upp þegar líður á daginn þegar skilin verða farin hjá. Þegar nokkur spálíkön eru skoðuð smá sjá að breytileikinn á milli þeirra er lítill og það gefur til kynna að við séum að nálgast líklegt veður á miðvikudag. Veðurlíkön sem reiknuð eru í háupplausn fyrir Ísland ná fyrst að spá fyrir veður á miðvikudagskvöld,  í útreikningum sínum á sunnudagskvöldið. Þau veðurlíkön sem skoðuð eru núna eru í grófara reiknineti. Því má gera ráð fyrir spáin fari að skýrast betur með hin ýmsu skýjalög ásamt úrkomutegund og magni í lok helgarinnar. 

Þessi spá er uppfærð tvisvar sinnum á dag og oftar þegar nær dregur viðburðinum.

Spákort fyrir kl. 18 miðvikudaginn 12. ágúst. Lægð er suður af Íslandi og úrkomu er spáð við suður-, vestur- og norðurströndina, en lítilli eða engri úrkomu á Austurlandi.

Kort sem sýnir staðsetningu lægðarinnar suður af landinu kl. 18 á miðvikudag. Þá er reiknað með úrkomusvæði víða við ströndina, sunnan-, vestan- og norðantil, en lítil eða engin á Austurlandi. Varast þarf að oftúlka þetta kort enda frekar langt í sólmyrkvann. Ekki er óvanalegt að spáin sýni miklar breytingar þetta langt fram í tímann.

Veðurhorfur á almyrkvaslóðum

Höfuðborgarsvæðið

Hæg austlæg átt og rigning eða súld um en væntanlega úrkomuminna um kvöldið. Frekar litlar líkur að göt myndist í skýjahuluna.

Reykjanesskaginn

Austlæg átt, 3-8 m/s og rigning eða súld með köflum, en úrkomuminna um kvöldið. Líklega alskýjað og ekki að sjá að skýjahulan brotni neitt upp. 

Snæfellsnes

Austan og norðaustan 3-8 m/s og dálítil rigning eða súld með köflum, en gæti verið þurrt og jafnvel léttskýjað eða bjart framan af degi. Hér þyrfti ekki miklar breytingar til að það yrði þurrt á meðan sólmyrkvinn gengi yfir.

Vestfirðir

Fremur hæg norðaustlæg átt og líkur á léttskýjuðum himni fram eftir degi, einkum þó sunnantil. En útlit er fyrir að ský og dálitla rigningu með köflum þegar líður á daginn. Sennilega verður þó bjartara yfir á sunnanverður fjörðnum og vestanverðum Breiðafirði en t.d. í Ísafjarðardjúpi.