Gul skriðuviðvörun fyrir Austfirði miðvikudaginn 14. október

12.10.2026

Athugið

Gul skriðuviðvörun fyrir Austfirði miðvikudaginn 14. október

  • Gul skriðuviðvörun fyrir norðan- og sunnanverða Austfirði.
  • Síðustu vikur hafa verið fremur úrkomusamar og jarðvegur víða orðinn blautur eða vatnsmettaður.
  • Talsverð úrkoma féll fyrr í vikunni á sunnan- og austanverðu landinu, að mestu í formi rigningar með talsverðri ákefð.
  • Frekari úrkoma eykur líkur á skriðuföllum vegna rakamettaðs og viðkvæms jarðvegs.

Síðustu vikur hafa verið fremur úrkomusamar víða um land. Talsverð úrkoma féll í byrjun vikunnar þegar skil gengu yfir sunnan- og austanvert landið. Úrkoman var öll í formi rigningar og þótt hún hafi ekki staðið lengi yfir fylgdi henni talsverð ákefð. Jarðvegur í hlíðum er því víða blautur eða vatnsmettaður og þar með viðkvæmur fyrir frekari vætu.

Að morgni miðvikudagsins 14. október ganga önnur skil upp að landinu í tengslum við djúpa lægð suður í hafi. Á Suðaustur- og Austurlandi má búast við talsverðri, en fremur skammvinnri, úrkomu í formi rigningar. Á Vestfjörðum og á Norðurlandi má gera ráð fyrir að snjói niður fyrir miðjar hlíðar og jafnvel niður í byggð.

Fjölmargar viðvaranir hafa verið gefnar út vegna lægðarinnar, meðal annars hríðarviðvaranir fyrir Vestfirði og Norðvesturland auk vindaviðvarana víða um land. Sjá veðurviðvaranir á vef Veðurstofunnar.

Auknar líkur eru á skriðuföllum, svo sem skriðum og grjóthruni, á meðan veðrið gengur yfir. Skriðuvakt Veðurstofunnar hvetur fólk sem þarf að vera á ferðinni að sýna aðgát á vegum, sérstaklega undir bröttum hlíðum og á þekktum grjóthrunssvæðum, og fylgjast vel með upplýsingum á vef Vegagerðarinnar.

Uppsöfnuð úrkoma frá þriðjudagsmorgni 13. október fram á föstudagsmorgun 16. október (72 klst).

Uppsöfnuð úrkoma frá þriðjudagsmorgni 13. október fram á föstudagsmorgun 16. október (72 klst).

Almenningur er hvattur til að tilkynna skriðuvaktinni um skriður og grjóthrun. Hægt er að senda tilkynningu á netfangið skriduvakt@vedur.is eða nota rafrænt eyðublað fyrir tilkynningar um ofanflóð. Gott er að tilgreina nákvæma staðsetningu og hvenær skriðan eða grjóthrunið varð. Ef það er ekki vitað nægir að segja hvenær þess varð vart. Látið myndir fylgja ef kostur er. Skriðuvaktin fer yfir tilkynningarnar og reynir að staðfesta þær áður en þær eru færðar í ofanflóðagagnagrunn Veðurstofunnar.