BETA

Yfirlitssíða um almyrkvann 12. ágúst 2026

06.08.2026

Nýtt

Yfirlitssíða um almyrkvann 12. ágúst 2026

Veðurstofa Íslands hefur tekið saman yfirlitssíðu um almyrkvann á sólu 12. ágúst 2026. Þar eru veðurupplýsingar, skýjahuluspár, fróðleikur, kort, tímasetningar og tenglar á mikilvægar upplýsingar frá öðrum aðilum.

Efni síðunnar verður uppfært eftir því sem nær dregur almyrkvanum, meðal annars með nýjustu upplýsingum frá Veðurstofunni og vefmyndavélum þegar þær verða aðgengilegar.