Veðurstofan þjónustar allt samfélagið með því að vakta, gefa út spár og viðvaranir vegna veðurs, jarðskjálfta, eldgosa, hlaupa, vatnsflóða og ofanflóða. Sérfræðingar stofnunarinnar eru leiðandi á sínu sviði og styðja viðbrögð sam-félagsins vegna náttúruvár og áhrifa loftslagsbreytinga með gagnasöfnun, varðveislu gagna, greiningu, rannsóknum, ráðgjöf og miðlun um náttúrufar á Íslandi.