13.10.2026
Athugið
Djúp lægð nálgast landið með stormi, úrkomu og hríð

Gular og appelsínugular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út vegna lægðarinnar sem nálgast landið. Á viðvörunarsíðunni má sjá hvenær þær gilda og lesa nánar um veðurhorfur og ráðleggingar.
Hugleiðingar veðurfræðings
Í dag hefur verið fremur hæg suðlæg átt á landinu og hafa skúrir eða lítilsháttar rigning látið á sér kræla í flestum landshlutum. Þegar þetta er skrifað hefur mest mælst 11,2 stiga hiti í Bolungarvík og 10,5 stig á Sauðanesvita yst á Tröllaskaga.
Austur af Nýfundnalandi hefur í dag mátt fylgjast með óveðurslægð morgundagsins á tunglmyndum. Þær bera þess merki að lægðin sé í örum vexti.
Austan stormur í fyrramálið, stórhríð norðvestanlands síðdegis
Þessi mjög djúpa og krappa lægð nálgast landið hratt úr suðri í nótt og skil frá henni ganga inn á landið í fyrramálið með austan stormi og talsverðri úrkomu. Möguleiki er á eldingum í skilunum.
Síðdegis á morgun gengur miðja lægðarinnar inn á land og þá dregur úr vindi og úrkomu sunnan- og austanlands. Hins vegar gengur þá í norðan stórhríð á norðvestanverðu landinu og þar hafa appelsínugular viðvaranir verið gefnar út.
Hríðin færist austur og veðrið gengur niður á fimmtudag
Annað kvöld og aðfaranótt fimmtudags heldur lægðin áfram ferð sinni til norðausturs og færist þá norðanáttin með hríðinni til austurs eftir norðanverðu landinu og einnig yfir á Austurland.
Á Norður- og Austurlandi snjóar væntanlega áfram á fimmtudagsmorgun, en síðan dregur smám saman úr norðanáttinni og ofankomu. Síðdegis á fimmtudag ætti lægðin að vera úr sögunni og veður orðið skaplegt, en nokkuð kalt.
Fylgist með veðurviðvörunum á viðvörunarsíðu Veðurstofunnar.
Spá gerð: 13.10.2026 16:05. Gildir til: 15.10.2026 00:00.