12.10.2026
Athugið
Dregur til mikilla tíðinda í veðrinu á miðvikudag

Kortið sýnir veðurviðvaranir sem gilda miðvikudaginn 14. október kl. 22.00. Valinn tími er merktur á tímalínunni neðst.
Á viðvörunarsíðunni má færa tímasleðann til að sjá hvaða viðvaranir gilda á öðrum tímum.
Í dag hefur verið sunnan kaldi eða strekkingur með skúrum. Í norðausturfjórðungi landsins létti hins vegar til með sólríku og fallegu veðri eftir að skil næturinnar fóru norður af. Þegar þetta er skrifað er mesti hiti sem mælst hefur í dag 13,6 stig í Neskaupstað og 13,5 stig á Eskifirði.
Á morgun er spáð rólegu veðri, hæg suðlæg eða breytileg átt og einhver væta með köflum. Aftur sker norðaustanvert landið sig úr með þurru veðri, þó má nefna að sums staðar gæti orðið vart við rigningu annað kvöld í þeim landshluta.
Spáð stormi og stórhríð á miðvikudag
Á miðvikudag gera spár síðan ráð fyrir að dragi til mikilla tíðinda í veðrinu þegar mjög djúp og kröpp lægð fer yfir landið. Fyrripart dags má búast við austan og norðaustan hvassviðri eða stormi á landinu með talsverðri eða mikilli rigningu á láglendi í flestum landshlutum, en slyddu eða snjókomu til fjalla.
Síðdegis á miðvikudag á sjálf lægðarmiðjan síðan að ganga inn á austurhluta landsins og því verður sá hluti landsins í svokölluðu svikalogni (litlum vindi) inni í lægðarmiðjunni. Vestan lægðarmiðjunnar er hins vegar norðan vindstrengur af stormstyrk.
Með norðanáttinni berst kaldara loft úr norðri og undir kvöld og á miðvikudagskvöldið má gera ráð fyrir að snælínan færist niður undir sjávarmál á Vestfjörðum og Norðurlandi-Vestra. Þar sem saman fer snjókoma og stormur, þar er stórhríð og því hafa appelsínugular viðvaranir verið gefnar út á þessum svæðum þar sem veðrið verður verst. Í öðrum landshlutum eru viðvaranirnar gular.
Spáin er viðkvæm fyrir breytingum á braut lægðarinnar
Spár fyrir þessa gerð óveðurs, þegar lægðarmiðja fer yfir landið með stormi í einum landshluta en litlum vindi í öðrum, eru sérlega viðkvæmar fyrir breytingum í braut lægðarmiðjunnar. Nýir spáreikningar berast veðurvakt Veðurstofunnar nokkrum sinnum á dag og eru þeir yfirfarnir og viðvörunum breytt ef þurfa þykir.
Útlit fyrir að veðrið gangi niður á fimmtudag
Óveðurslægðin fer hratt yfir og verður skv. spám stödd fyrir norðaustan land á fimmtudagsmorgun. Þá verður ennþá hvöss norðvestanátt með snjókomu á Norður- og Austurlandi. Síðan heldur lægðin áfram sinni hraðferð til norðausturs og eftir hádegi á fimmtudag ætti hún að vera úr sögunni og þá er gert ráð fyrir köldu en skaplegu veðri á landinu.