Skýjahula nú aðgengileg á korti á gottvedur.is

12.08.2026

Skýjahula nú aðgengileg á korti á gottvedur.is

Ný þekja fyrir skýjahulu er nú aðgengileg á gottvedur.is. Hún sýnir hvernig heildarskýjahula dreifist yfir landið samkvæmt spá á þeim tíma sem valinn er. Jafnframt hefur verið opnuð sérstök upplýsingasíða fyrir sólmyrkvasvæðið.

Hvernig skoða ég skýjahuluspána?

Farið á gottvedur.is/vedur/spar/ og smellið á stækkunarhnappinn til að opna kortið í fullri stærð.

alt=""

Smellið á stækkunarhnappinn efst til hægri til að opna kortið í fullri stærð.

Veljið síðan „Skýjahulu“ í valmyndinni hægra megin. Þar er einnig hægt að velja spár fyrir vind, hita og úrkomu.

alt=""

Með því að færa örina á tímalínunni má skoða skýjahuluspána á mismunandi tímum

Með því að færa örina á tímalínunni má skoða skýjahuluspána á mismunandi tímum og sjá hvernig dreifing skýjanna breytist samkvæmt spánni.

Með því að smella hvar sem er á kortið fæst skýjahuluspá í þeim „punkti“ á kortinu.

alt=""

Hvað sýnir þekjan?

Þekjan sýnir heildarskýjahulu, það er hversu stór hluti himins er hulinn skýjum. Hún tekur til lágskýja, miðskýja og háskýja en gerir ekki greinarmun á skýjum í mismunandi hæð.

Mikil heildarskýjahula þýðir því ekki endilega að sólin sjáist ekki. Skýjahulan getur verið þunn háský sem hleypa sólarljósinu í gegn, en einnig þétt ský sem byrgja alveg sýn til sólar.

Skýjahulan segir heldur ekki hvar á himninum skýin verða miðað við sólina. Lítill skýjafláki getur því skyggt á sólina um stund þótt skýjahula sé almennt lítil.

Framsetningin verður þróuð áfram

Þekjan á gottvedur.is sýnir sem stendur heildarskýjahulu. Unnið er að frekari þróun hennar og stefnt er að því að skipta skýjunum upp í lágský, miðský og háský, líkt og í eldri skýjahuluspá Veðurstofunnar.

Við þróunina verður jafnframt leitast við að bæta úr annmörkum eldri framsetningar og gera upplýsingarnar skýrari og auðveldari í notkun. Markmiðið er að notendur geti með einföldum hætti séð bæði heildarskýjahulu og skýjahulu í mismunandi hæð.

Þangað til má nota heildarskýjahuluna á gottvedur.is til að fá yfirlit, en nánari skiptingu skýjanna er að finna í skýjahuluspánni á vedur.is.

Nýtist við undirbúning fyrir sólmyrkvann

Skýjahuluþekjan getur nýst til að fá yfirsýn yfir líklegar aðstæður á sólmyrkvasvæðinu. Best er að skoða nokkra spátíma í röð og fylgjast með nýjustu spám þegar nær dregur.

Skýjahuluspár eru reiknaðar með veðurlíkönum og eru ekki bein athugun á skýjum. Staðsetning og tímasetning skýjasvæða geta breyst og einstök ský eða göt í skýjahulunni sjást ekki alltaf í spánni. Því er einnig gagnlegt að fylgjast með veðurtunglamyndum, veðurathugunum og vefmyndavélum á sjálfan sólmyrkvadaginn.

Sólmyrkvinn getur sést þótt ský séu á himni, svo lengi sem ekki er mjög þungskýjað. Ský eru þó ekki örugg vörn fyrir augun. Nota þarf viðurkennd sólmyrkvagleraugu þegar horft er á sólina.