BETA

Úrkoma og auknar líkur á skriðuföllum mánudaginn 7. september

06.09.2026

Nýtt

Úrkoma og auknar líkur á skriðuföllum mánudaginn 7. september

Að kvöldi sunnudags gengur lægð inn yfir suðaustanvert landið og færist síðan yfir Austfirði mánudaginn 7. september. Mest úrkoma er væntanleg á norðanverðum Austfjörðum, einkum sunnan Seyðisfjarðar og við Mjóafjörð, þar sem búast má við allt að 110 mm úrkomu á 24 klukkustundum.

Á norðanverðum Austfjörðum hefur verið úrkomusamt í vikunni og hafa grunnvatnsstöður í borholum farið hækkandi síðustu daga. Úrkoman sem spáð er á mánudag bætist við úrkomuna sem hefur verið síðustu daga og auka líkur á grjóthruni og aurskriðum í þekktum skriðufarvegum.

Ekki er spáð jafn mikilli úrkomu í byggð og ef spáin gengur eftir er ekki talin vera hætta í byggð.

Fólki er ráðlagt að sýna aðgát á ferðum sínum, dvelja ekki lengi undir giljum og bröttum hlíðum og vera ávallt vel vakandi fyrir aðstæðum í umhverfinu.

Veðurstofan þiggur gjarnan tilkynningar um ofanflóð. Hægt er að hafa samband í síma 522-6000 á opnunartíma skiptiborðsins (https://www.vedur.is/um-vi/hafa-samband/) eða senda tölvupóst með upplýsingum á netfangið skriduvakt@vedur.is. Gott er að láta fylgja mynd af flóðinu (skriðunni, grjóthruninu) og nákvæma staðsetningu auk tímasetningar, hvenær ofanflóðið féll eða hvenær fólk varð vart við það. Einnig er hægt að tilkynna ofanflóð með þessu formi hér.

Uppsöfnuð úrkoma fram að aðfaranótt þriðjudags samvæmt UWC-IG veðurlíkaninu.

Uppsöfnuð úrkoma fram að aðfaranótt þriðjudags