BETA
08.08.2026
Nýtt
Norðlægar og norðaustlægar áttir verða ríkjandi yfir landinu í dag, laugardaginn 8. ágúst, og gera veðurspár ráð fyrir úrkomu á norðan- og austanverðu landinu. Mest verður úrkoman á Flateyjarskaga og á Austfjörðum. Eftir miðnætti dregur hratt úr úrkomu og búast má við fremur þurru veðri á morgun.
Rigning hefur verið á norðan- og austanverðu landinu síðastliðinn sólarhring og spár gera ráð fyrir áframhaldandi úrkomu fram á kvöld. Samkvæmt spám verður mesta úrkoman á Flateyjarskaga og á Austfjörðum.
Ekki er hægt að útiloka grjóthrun og minni skriður undir bröttum hlíðum og í vegskeringum á næsta sólarhring. Ekki er talin hætta fyrir byggð.
Veðurstofan þiggur gjarnan tilkynningar um ofanflóð. Hægt er að hafa samband í síma 522-6000 á opnunartíma skiptiborðsins (https://www.vedur.is/um-vi/hafa-samband/) eða senda tölvupóst með upplýsingum á netfangið skriduvakt@vedur.is. Gott er að láta fylgja mynd af skriðunni eða grjóthruninu og nákvæma staðsetningu auk tímasetningar, hvenær atburðurinn átti sér stað eða hvenær fólk varð vart við það. Einnig er hægt að tilkynna ofanflóð með þessu formi hér.

Uppsöfnuð úrkoma næstu 36 klst samkvæmt UWC/IG veðurspánni. Á kortinu sést að úrkoman er mest í kringum Flateyjarskaga og á Austfjörðum.