BETA

Veðurspá vegna sólmyrkvans, gerð kl. 11 mánudaginn 10. ágúst

10.08.2026

Veðurspá vegna sólmyrkvans, gerð kl. 11 mánudaginn 10. ágúst


Veðurhorfur vegna sólmyrkvans miðvikudaginn 12. ágúst

72 klst. fram í tímann

Á miðvikudag er gert ráð fyrir að lægð komi upp að sunnanverðu landinu. Nýjustu veðurlíkanakeyrslur reikna með að hún verði skammt suður af Reykjanesinu síðdegis á miðvikudag og fari veðraskil hennar yfir stærstan hluta landsins. Síðan er útlit fyrir að hún þokist austur með suðurströndinni í framhaldinu. Úrkoma verði einkum bundin við sunnanvert landið en úrkomuminna í Breiðafirði, fyrst norðantil, en síðar sunnantil undir kvöld. Þar myndu líklega mestar líkur verða á að skýjahula gæti brotnað upp. Einnig verður lengst af þurrt norðanlands fram eftir degi.

Nú eru flest líkön komin með lægðina á svipaðar slóðir og aukast því líkur á að við séum að nálgast rétta staðsetningu lægðarinnar. Enn er óvissa um umfang skilanna og hve mikið og langt skilin ganga til norðurs upp eftir Faxaflóa. Það mun hafa mikið að segja hve vel eða hvort eitthvað muni sjást til sólmyrkvans.

Nú eru háupplausnarlíkönin farin að ná nógu langt til að dekka kl. 18 á miðvikudag. Þar er að finna þrenn skýjalög, há- mið- og lágský. Háský hafa lítil áhrif á sólmyrkvann þar sem sólarljós á frekar auðvelt með að brjótast í gegnum þau. Miðskýin hleypa minna í gegnum sig en alls ekki útilokað að hægt sé að njóta sólmyrkvans. Ef hins vegar liggur lágskýjasvæði yfir eru líkurnar hins vegar litlar á að eitthvað sjáist til sólar eða myrkvans.

Heildarskýjahulan gefur til kynna að nánast verði alskýjað yfir landinu kl. 18 (græn mynd). Hins vegar er að sjá að lágskýjamyndin sé dálítið brotin sums staðar vestanlands og á Vestfjörðum. Mið- og háský sýna göt á svipuðum slóðum en ekki á alveg sömu stöðum.

Fjögur veðurkort af Íslandi sem sýna spá um heildarskýjahulu, lágský, miðský og háský kl. 18 miðvikudaginn 12. ágúst. Líkanaspáin gerir ráð fyrir nær samfelldri heildarskýjahulu, en mögulegum götum í skýjahulunni, einkum vestanlands og á Vestfjörðum.

Almennt eru skýjahuluspár þær afurðir sem hvað erfiðast er að reikna þar sem eðlisfræðin þar á bakvið er mjög flókin. Því ber að taka svona smágötum með fyrirvara. Spáin er frekar að gefa til kynna að göt gætu myndast á svæðinu frekar og ekki hægt að staðsetja þau nákvæmlega.

Spáin fyrir allt landið á miðvikudag er svohljóðandi:

Austan og norðaustan 3-10 m/s, víða skýjað og rigning með köflum. Dregur úr úrkomu á Vesturlandi um kvöldið. Hiti 8 til 18 stig, svalast við norður- og austurströndina.

Úrkomuspákort sem gildir kl. 18 á miðvikudag og sýnir með mun meiri nákvæmni hvar rigning muni falla.

Veðurkort sem sýnir úrkomu- og vindaspá fyrir Ísland kl. 18 miðvikudaginn 12. ágúst. Samkvæmt líkaninu er úrkomu einkum spáð á sunnanverðu landinu, en minni úrkomu norðanlands. Örvar sýna vindátt og vindstyrk.

Úrkomu- og vindaspá fyrir kl. 18 miðvikudaginn 12. ágúst. Spáin var gerð kl. 11 mánudaginn 10. ágúst.

Veðurhorfur á almyrkvaslóðum

 Höfuðborgarsvæðið

Fremur hæg austlæg eða norðaustlæg átt, skýjað og rigning. Litlar líkur á að göt myndist í skýjahuluna í kringum sólmyrkvann.

 

Reykjanesskaginn

Svipað útlit og með höfuðborgarsvæðið, norðaustlæg átt og rigning, litlar líkur á að göt myndist. 

 

Snæfellsnes

Núverandi spá gefur til kynna austanátt og yfirleitt þurrt fram til hádegis, en rigning með köflum síðdegis. Dregur úr úrkomu undir kvöld. Líklega skýjað, en allnokkrar líkur á að lág- og miðskýjahulan gæti brotnað upp á stöku stað.  

 

Vestfirðir

Fremur hæg norðaustlæg átt og þurrt að mestu. Á Vestfjörðum verður líklega bjartara yfir og allgóðar líkur á að göt gætu myndast í gegnum skýjahuluna, einkum norðantil. Núna er útlit fyrir að þau ský sem verði á himni verði mest af mið- og háskýjategundum og minna um lágský.