Frá vaktinni
Aukin hætta á skriðum og grjóthruni vegna mikillar úrkomu
27.10.2026 | 11:04
Skilin sem spáð var fyrir um í gær ganga nú yfir landið og mikil úrkomuákefð hefur mælst á nokkrum stöðum, meðal annars á Austfjörðum, Austurlandi að Glettingi og á Tröllaskaga. Úrkoma hefur víða mælst meiri en spár gerðu ráð fyrir og skilin virðast ganga hraðar yfir en reiknað var með, einkum á norðanverðu landinu.
Skriðuvakt
Úrkoma og leysingar á þriðjudag, 27. október
26.10.2026 | 14:43
Veðurspáin gerir ráð fyrir úrkomuskilum sem ganga yfir landið frá aðfaranótt þriðjudags, 27. október. Úrkoman byrjar á Suðausturlandi og nær síðan yfir mestallt landið. Mesta úrkomuákefðin verður við og sunnan Vatnajökuls, á Austfjörðum, á Flateyjarskaga og á Ströndum. Skilin ganga fremur hratt yfir landið og á miðvikudag styttir upp. Mesta uppsafnaða úrkomu samkvæmt veðurspánni er að vænta á Ströndum, einkum á jöklum og til fjalla, nyrst á Tröllaskaga, á Flateyjarskaga, á Vesturkinn (fjöllum austan Vopnafjarðar), á norðanverðum Austfjörðum og á Öræfum.
Skriðuvakt
Úrkoma samfara leysingum á vestanverðu landinu
16.10.2026 | 10:11
Tvær lægðir nálgast nú landið úr suðvestri. Sú fyrri gengur upp með austurströnd Grænlands og mun áhrifa hennar gæta síðdegis laugardaginn 17. október, en sú síðari mun fara meðfram vesturströnd landsins að morgni sunnudagsins 18. október. Þessar lægðir munu bera með sér hlýtt loft og úrkomu og stuðla að leysingum.
Skriðuvakt
Snjóflóðavakt tekin til starfa
16.10.2026 | 09:12
Snjóflóðvakt er tekin til starfa fyrir veturinn 2026-27. Svæðisbundin snjóflóðaspá er gerð þrisvar í viku, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga.
Snjóflóðavakt
Djúp lægð nálgast landið með stormi, úrkomu og hríð
13.10.2026 | 18:55
Djúp lægð nálgast landið í nótt með austan stormi og talsverðri úrkomu í fyrramálið. Síðdegis gengur í norðan stórhríð norðvestanlands sem færist austur um nóttina. Veðrið gengur niður á fimmtudag. Fylgist með veðurviðvörunum.
Veðurvakt
Dregur til mikilla tíðinda í veðrinu á miðvikudag
12.10.2026 | 16:34
Spár gera ráð fyrir að mjög djúp og kröpp lægð fari yfir landið á miðvikudag með stormi, mikilli úrkomu og stórhríð á hluta landsins. Spár fyrir þessa gerð óveðurs eru sérlega viðkvæmar fyrir breytingum í braut lægðarmiðjunnar.
Veðurvakt
Gul skriðuviðvörun fyrir Austfirði miðvikudaginn 14. október
12.10.2026 | 13:24
Síðustu vikur hafa verið fremur úrkomusamar víða um land. Talsverð úrkoma féll í byrjun vikunnar þegar skil gengu yfir sunnan- og austanvert landið. Úrkoman var öll í formi rigningar og þótt hún hafi ekki staðið lengi yfir fylgdi henni talsverð ákefð. Jarðvegur í hlíðum er því víða blautur eða vatnsmettaður og þar með viðkvæmur fyrir frekari vætu.
Skriðuvakt
Talsverð skammvinn úrkoma á sunnan- og austanverðu landinu fram á morgun
11.10.2026 | 13:18
Seint í kvöld, 11. október, koma skil inn að landinu sunnanverðu. Á Suðaustur- og Austurlandi má búast við talsverðri skammvinnri úrkomu. Á hádegi á morgun eiga skilin að vera gengin yfir. Ekki er hægt að útiloka hreyfingar, svo sem grjóthrun og minni skriður, á meðan skilin ganga yfir.
Skriðuvakt
Gul skriðuviðvörun á Austfjörðum og norðanverðum Vestfjörðum
07.10.2026 | 11:30
Auknar líkur á grjóthruni og minni skriðum á Austfjörðum og norðanverðum Vestfjörðum er skil ganga yfir landið á fimmtudag og föstudag. Á föstudag á að draga úr úrkomu og kólna lítillega, dregur þá úr skriðuhættu.
Skriðuvakt
Gul skriðuviðvörun á norðanverðum Vestfjörðum
03.10.2026 | 09:28
Skriður og grjóthrun hafa fallið víða á norðanverðum Vestfjörðum síðustu daga. Stór skriða féll á Hnífsdalsveg og lokaði vegi um stund. Vegna áframhaldandi úrkomu næstu daga er enn hætta á skriðum og grjóthruni á svæðinu.
Skriðuvakt
Síur
Vakt
Tög